Jafnréttis- og jafnlaunastefna

Tilgangur og markmið jafnréttis og jafnlaunastefnu Þrif og ræstivara er að stuðla að jafnrétti kynjanna í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020, þar með talið að greidd séu sambærileg laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, þannig að stefnt sé að enginn óútskýrður kynbundinn launamunur sé til staðar hjá Þrif og ræstivörum.

Þrif og ræstivörur leggur áherslu á jafnrétti kynjanna og að nýta til jafns styrkleika allra þannig að hæfileikar og færni alls mannauðs félagsins njóti sín sem best og er það skjalfest með stefnu þessari.

Stefna Þrif og ræstivara er að vera vinnustaður þar sem hver einstaklingur er metinn að verðleikum eftir hæfni og frammistöðu. Einnig að starfsfólk hafi jöfn tækifæri til þess að axla ábyrgð og sinna verkefnum óháð kyni.

Þrif og ræstivörur skuldbindur sig til að vinna að jafnréttismálum, hafa frumkvæði í þeim og sýna þannig samfélagsábyrgð. Þrif og ræstivörur fylgir lögum, reglum og samningum sem snerta jafnréttismál og gilda á hverjum tíma.

  • Þrif og ræstivörur greiðir öllum sömu laun fyrir jafnverðmæt störf
  • Allir skulu njóta sömu kjara eða réttinda sem metin verða til fjár, t.a.m. er varðar lífeyris-, orlofs-, og veikindarétt, og hlunnindi af einhverju tagi
  • Þrif og ræstivörur leggur áherslu á að allir njóti sömu tækifæra í starfi og eigi jafna möguleika á starfsþróun
  • Þrif og ræstivörur fylgir eftir jafnréttisáætlun þar sem lögð er áhersla á að allir starfsmenn geti notið sín án tillits til kynferðis, þjóðernis, trúarbragða, skoðana, kynþáttar, kynhneigðar, aldurs og stöðu hvers og eins
  • Áhersla er lögð á að nýta jafnt styrkleika sem felst í menntun, reynslu og viðhorfi allra og jafnan möguleika þeirra á að njóta sín í starfi
  • Hjá Þrif og ræstivörum skal gagnkvæm virðing og kurteisi ráða ríkjum, einelti, kynbundin og kynferðisleg áreitni er ekki liðin

Svæði

  • Símar: 4615232
  • thrif@thrif.is

Þrif og ræstivörur

Frostagötu 4c | 603 Akureyri Staðsetning

Símar: 4615232 | 8652625 | 

 

Þrif og ræstivörur